Tengt einu sinni. Gleymt eftir það.
Allir reikningar á einum skjá
Þú sérð stöðu og færslur allra bankareikninga fyrirtækisins, án þess að flakka á milli bankaappa.
Erlendir gjaldmiðlar líka
Reikningar í erlendum gjaldmiðli eru tengdir eins og aðrir og færslur bókast á gengi dagsins.
Kreditkortin
Kortafærslur koma inn eins og bankafærslur og kortareikningurinn stemmir í lok tímabils.
Bankinn tengdur í fjórum skrefum.
- 1Þú samþykkir tengingunaÞú skráir þig inn hjá bankanum einu sinni, eins og í netbankann. Það er eina verkið þitt.
- 2Við sækjum sögunaEldri færslur koma inn og eru stemmdar af við opnunarstöðuna. Við höfum samband ef eitthvað vantar.
- 3Við bókum jafnóðumHver ný færsla er bókuð um leið og hún berst.
- 4Bókhaldið er jafn nýtt og bankinnÞú sérð rétta stöðu í appinu hvenær sem er.
Allt sem þarf til að hver færsla skili sér.
Pöruð við reikning
Bankafærslan parast við réttan reikning eða kvittun, líka þegar greiðsla nær yfir marga reikninga.
Á réttan lykil
Laun, leiga og kortagjöld fara á lykla samkvæmt RSK. Kerfið lærir hvernig þinn rekstur er.
Spurning aðeins ef þarf
Sé færsla óljós færðu eina spurningu í appinu, ekki heilan lista í lok mánaðar.
Aðgangur fyrir teymið
Bættu við starfsfólki eða endurskoðanda með eigin heimildum. Hver og einn sér það sem hann þarf, ekkert meira.
Faglegt bókhald. Eitt fast verð.
Með bankatengingunni fylgir bókari sem klárar verkið, og gerir það á undan tímanum.
Skoða bókhald- Fólkið okkar sér um bókhaldið, VSK-skilin og launin
- Íslenskir bókarar, þjálfaðir í lögum og reglum RSK
- 20% lægri bókhaldskostnaður á ári
Algengar spurningar
Getur Kassify fært peninga?
Nei. Tengdir reikningar eru aðeins lesnir. Greiðslur samþykkir þú áfram í netbankanum.
Þarf ég að skipta um banka?
Nei. Þú heldur þínum banka og reikningum. Enginn nýr reikningur þarf að opnast.
Get ég slitið tengingunni?
Já, hvenær sem er. Bókaðar færslur verða áfram í bókhaldinu, eins og lög krefjast.
Hætta að slá inn bankafærslur.
Skildu eftir netfangið og við höfum samband innan 24 klst.