Snjallir reikningar

Sendu faglega reikninga. Fáðu fyrr greitt.

Gerðu, sendu og fylgstu með reikningum í sama kerfi, og vittu um leið og greiðslan berst.

  • Reikningar með þínu merki
  • Greitt með einum smelli
  • Sjálfvirk pörun greiðslna og áminningar
Reikningagerð

Frá reikningi til greiðslu. Allt í sama kerfi.

  • Eitt samfellt ferli

    Þú flakkar ekki lengur á milli netbanka og reikningakerfis.

  • Þitt merki og litir

    Settu inn merkið þitt, veldu liti og sniðmát sem passar. Hver reikningur lítur út eins og hann komi frá fyrirtæki tíu sinnum stærra en þitt.

  • Þú veist hvar peningarnir eru

    Þú sérð hvað er greitt, hvað er komið fram yfir eindaga og hvað er á leiðinni. Enginn Excel, engar ágiskanir og ekkert óvænt um mánaðamót.

Ferlið

Það á ekki að vera erfitt að fá greitt.

  1. 1Gerðu reikninginnFaglegur reikningur með þjónustu, verði, VSK og greiðsluskilmálum, sendur á nokkrum mínútum.
  2. 2Sendu reikninginnViðskiptavinurinn fær öruggan hlekk í tölvupósti og þú sérð hvenær hann er opnaður og greiddur.
  3. 3Viðskiptavinurinn greiðirHann velur leiðina sjálfur. Enginn tvíverknaður og ekkert slegið inn.
  4. 4Greiðslan berstReikningurinn merkist greiddur án þess að þú lyftir fingri.
Reikningagerð

Fljótlegasta leiðin frá vinnu til tekna.

Þú sérð reikninginn um leið og þú skrifar hann, með athugasemdum, skilmálum og greiðsluupplýsingum, svo ekkert kemur þér eða viðskiptavininum á óvart.

  • Áminningar í þínum tón, kurteisar, beinskeyttar eða þar á milli
  • Endurteknir reikningar, vikulega, mánaðarlega eða eftir eigin áætlun
  • Staðfesting fyrir hverja sendingu á endurteknum reikningi
Rafrænir reikningar og kort

Sami reikningur, hvernig sem greitt er.

Ríkið og stærri fyrirtæki fá reikninginn rafrænt. Aðrir greiða eins og þeim hentar.

  • Rafrænir reikningar samkvæmt EN 16931 og Peppol, í gegnum Unimaze
  • Kort, Apple Pay og Google Pay á greiðslusíðunni
  • Krafa í netbanka fyrir þá sem vilja frekar greiða þar
Kostirnir

Þess vegna virkar þetta.

  • Gert fyrir íslensk fyrirtæki

    VSK í 24% og 11% þrepi eða undanþegið, valið á hverja línu, íslensk númeraröð og kennitala. Engin uppsetning.

  • Bankinn og reikningarnir saman

    Þegar sama kerfið les bankann og sendir reikningana gerist afstemmingin sjálfkrafa, án handavinnu.

Reikningar

Hluti af allri fjármáladeildinni.

Bókarinn sér hvern reikning við hlið færslnanna. Þegar kemur að eindaga er VSK-skýrslan þegar tilbúin, af því að reikningarnir og bókhaldið hafa verið samstíga allan tímann.

Skoða bókhald og skatta
  • Fólkið okkar sér um bókhaldið, VSK-skilin og launin
  • Íslenskir bókarar, þjálfaðir í lögum og reglum RSK
  • 20% lægri bókhaldskostnaður á ári
Einfalt verð

Innifalið í Kassify.

Sölureikningar eru hluti af föstu mánaðarverði. Engin gjöld á hvern reikning og engin falin gjöld.

  • Ótakmarkaður fjöldi reikninga
  • Greiðslusíður sem má deila
  • PDF til að sækja
Spurningar

Algengar spurningar

Þarf ég að vera í bókhaldi hjá Kassify til að senda reikninga?

Já. Reikningagerðin er innbyggð í Kassify.

Hvað gerist ef viðskiptavinur greiðir ekki á réttum tíma?

Áminningar fara eftir áætlun sem þú stýrir, og þú getur fylgt reikningnum eftir sjálfur ef þarf.

Hvað kostar kortagreiðsla?

Við segjum þér kortagjöldin skriflega áður en þú byrjar. Greiðslan er gerð upp inn á bankareikning fyrirtækisins og Kassify parar uppgjörið við reikningana sem það nær yfir.

Hætta að elta greiðslur.

Skildu eftir netfangið og við höfum samband innan 24 klst.