Að skipta

dk hækkaði verðið. Hér eru 5 bestu valkostirnir og hvernig þú skiptir um kerfi.

Kassify · 5. nóvember 2026

Í mars 2026 kostaði ódýrasti pakkinn á vef dk 12.857 kr. á mánuði án VSK. Í nóvember kostar ódýrasti pakkinn 19.250 kr. Fyrirtæki sem eru með dk og fá hærri reikning eru farin að spyrja hvað annað sé í boði og hvað kosti að skipta.

Hér er röðun valkostanna, verðin, hvað felst í hverjum kosti og hvernig þú skiptir um kerfi.

Hvað breyttist hjá dk

dk tilkynnti 28. nóvember 2025 um verðhækkanir á völdum þjónustuþáttum um áramótin, án þess að nefna tölur. Verðlistinn á vef dk leit svona út í mars og í nóvember, á mánuði án VSK:

Pakki, 10. mars 2026VerðPakki, 5. nóvember 2026Verð
Viðskiptalausn I12.857 kr.dk Kjarni19.250 kr.
Viðskiptalausn II16.343 kr.dk Vöxtur29.500 kr.
Viðskiptalausn III19.835 kr.dk Tindur39.000 kr.

Samsetning pakkanna breyttist um leið, og þjónustusamningur fylgir nú öllum nýjum pökkum.

Kerfið er aðeins hluti af reikningnum

dk er kerfi. Einhver þarf samt að bóka, stemma af, skila VSK og keyra launin, og endurskoðandi þarf að gera ársreikning og skattframtal. dk Vöxtur, sá pakki sem er mest valinn á vef dk, kostar 354.000 kr. á ári. Simplex birtir verð frá 39.900 kr. á mánuði fyrir bókhald og VSK-skil, eða 478.800 kr. á ári. Endurskoðun & ráðgjöf birtir verð frá 130.000 kr. fyrir ársreikning og skattframtal félags. Saman eru það 962.800 kr. á ári án VSK, á þremur reikningum, og þú heldur enn utan um samskiptin á milli þessara þriggja aðila.

Það sem skiptir máli er hver vinnur verkið. Þess vegna fer röðunin hér að neðan eftir því hve mikla vinnu þú losnar við, og síðan eftir verði.

5 bestu valkostirnir við dk

Verð á mánuði án VSK, af vefjum fyrirtækjanna 5. nóvember 2026.

#ValkosturHver vinnur verkiðVerðHentar
1KassifyKassifyEitt fast verð, 20% lægra en hjá hefðbundinni bókhaldsstofuFyrirtækjum af öllum stærðum
2PaydayÞú eða bókarinn þinn, auk endurskoðanda4.600 til 11.700 kr., í mesta lagi 2% af veltuEinyrkjum og litlum fyrirtækjum sem bóka sjálf
3ReglaÞú eða bókarinn þinn, auk endurskoðanda8.800 til 23.700 kr.Verslunum og veitingastöðum með eigin bókara
4NetbókhaldÞú eða bókarinn þinn, auk endurskoðanda5.900 til 13.754 kr.Þeim sem vilja bóka sjálf á föstu verði
5UnicontaÞú eða bókarinn þinn, auk endurskoðandaFrá 7.995 kr. fyrir einn notanda hjá FjártækniFlóknari rekstri með eigin fjármáladeild

1. Kassify

Kassify er heil fjármáladeild á einu föstu verði. Þetta er bókhaldsstofa sem notar gervigreind, svo þú þarft hvorki sérstakt kerfi, bókara né endurskoðanda til viðbótar. Hver færsla er lesin, flokkuð og pöruð án þess að þú sláir neitt inn.

Hinir fjórir valkostirnir hér að neðan eru kerfi. Þú skiptir um kerfi, vinnan er áfram þín og þú greiðir áfram bókara og endurskoðanda. Hjá Kassify hættir þú að sjá um bókhaldið.

2. Payday

Íslenskt skýjakerfi í eigu Visma, með reikningagerð, bókhaldi og launum. Allur pakkinn kostar að hámarki 11.700 kr., eða 2% af veltu ef það er lægra.

Athugaðu: Bókunin er áfram hjá þér eða bókaranum þínum. Bókarinn og endurskoðandinn bætast við verðið.

3. Regla

Íslenskt skýjakerfi með fast mánaðargjald og enga prósentu af veltu. Byrjendapakkinn kostar 8.800 kr., fjárhagur og sala 15.800 kr. og með launum 23.700 kr. Afgreiðslukerfi og vefverslunartenging fást sem viðbót. Finago lauk kaupum á Reglu 2. nóvember 2026.

Athugaðu: Færslufjöldi telst frá upphafi, ekki á mánuði, rafrænir reikningar kosta 3.600 kr. aukalega, og bókarinn og endurskoðandinn bætast við verðið.

4. Netbókhald

Íslenskt kerfi ætlað litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem vilja sjá um bókhaldið sjálf. Eitt kerfi kostar 5.900 kr. og allur pakkinn 13.754 kr., óháð fjölda starfsmanna og veltu.

Athugaðu: Bankatenging kostar 2.785 kr. og rafrænir reikningar 2.100 kr. til viðbótar, samtals 18.639 kr. með allan pakkann, og bókarinn og endurskoðandinn bætast við.

5. Uniconta

Danskt kerfi sem er selt hér í gegnum endursöluaðila. Hjá Fjártækni kostar Standard 4.495 kr. og íslensk staðfærsla 3.500 kr. á notanda, samtals 7.995 kr. fyrir einn notanda. Vörustýring, verkbókhald og framleiðsla fást sem viðbætur.

Athugaðu: Bankalausnir kosta 1.995 kr. og skeytamiðlun 4.995 kr. með 15.000 kr. stofngjaldi, og hver notandi bætist við verðið, auk bókara og endurskoðanda.

Hver vinnur verkið

VerkKerfi, bókari og endurskoðandiKassify
Bóka færslurBókarinn eða þúKassify
BankaafstemmingBókarinn eða þúKassify
VSK-skilBókarinnKassify
Laun, staðgreiðsla og skilagreinarBókarinn eða þúKassify
Ársreikningur og skattframtalEndurskoðandi, sérstakur reikningurLöggiltur endurskoðandi, innifalið í mánaðarverðinu
Reikningar sem þú greiðirKerfi, bókari, endurskoðandiEinn

Hvernig þú skiptir um kerfi

Ef þú skiptir sjálfur um kerfi eru þetta skrefin:

  1. 1
    Veldu skiptidag

    Mánaðamót, helst um áramót eða þegar nýtt VSK-tímabil hefst (janúar, mars, maí, júlí, september, nóvember). VSK-tímabil eru yfirleitt tveir mánuðir, og hálft tímabil í hvoru kerfi veldur aukavinnu.

  2. 2
    Gakktu frá bókhaldinu í dk

    Staðfestu færslur og stemmdu bankann af fyrir skiptidaginn. Ef þú skiptir um áramót þarf samt að ljúka gamla árinu: síðasta VSK-tímabili, launamiðum og ársreikningi.

  3. 3
    Flyttu gögnin

    Saldólisti, viðskiptamenn, birgjar, vörur og opnunarstaða. Sum kerfi taka aðeins opnunarstöður en ekki söguna, svo spurðu fyrst hvað sé hægt að flytja.

  4. 4
    Berðu saman tölurnar

    Keyrðu saldólista í báðum kerfum. Tölurnar eiga að stemma áður en þú heldur áfram.

  5. 5
    Settu upp bankatengingu og laun

    Bankatengingin þarf að virka frá skiptideginum, og laun hvers mánaðar eru keyrð í einu kerfi, ekki báðum.

  6. 6
    Geymdu gömlu gögnin

    Lög um bókhald nr. 145/1994 krefjast þess að bókhaldsgögn séu varðveitt í 7 ár frá lokum reikningsárs. Tryggðu aðgang að þeim áður en þú segir upp áskriftinni að dk.

Bóklega, sem vinnur með Payday, áætlar tvær til þrjár vikur fyrir lítið fyrirtæki.

Með Kassify sleppur þú við þetta allt. Þú gefur upp nafn bókarans, Kassify flytur söguna, stemmir hvern lykil af og tekur við á innan við 7 dögum. Flutningurinn er innifalinn í föstu verði.

Spurningar

Hvað kostar Kassify?

Eitt fast mánaðarverð, sem fer eftir umfangi rekstrarins, nær yfir bókhald, laun, VSK, ársreikning og skattframtal. Þú færð verðið skriflega áður en þú ákveður þig.

Hvað með bókarann minn?

Kassify talar við hann og tekur við af honum fyrir þig. Þú þarft ekki að eiga það samtal.

Hvenær er best að skipta?

Um áramót, því þá hefst nýtt reikningsár hjá flestum félögum. Skiptu fyrir áramót og Kassify tekur við bókhaldinu frá 1. janúar. Það má líka skipta á öðrum tíma ársins.

Hver sér um bókhaldið?

Viðurkenndir bókarar og löggiltir endurskoðendur. Gervigreindin vinnur verkið og fagfólk Kassify stendur á bak við hana.

Hætta að borga þremur. Eitt fast verð.

Skildu eftir netfangið og Kassify fer yfir kostnaðinn hjá þér. Þú færð verðið skriflega áður en þú ákveður þig.